Skip, skipsbúnaður og
fólksbifreiðar aðrar en leigubifreiðar |
10-20% (*) |
Loftför og fylgihlutir |
10-20% (*) |
Verksmiðjuvélar,
iðnaðarvélar og tæki |
10-30% (*) |
Skrifstofuáhöld- og tæki |
20-35% (*) |
Vélar, tæki, bifreiðar og
annað lausafé, sem ekki fellur undir ofangreint |
20-35% (*) |
Íbúðarhúsnæði, skrifstofu-
og verslunarbyggingar |
1-3% |
Verksmiðju- og
verkstæðisbyggingar o.fl. |
3-6% |
Ýmis sérhæfð mannvirki,
allt að |
10% |
Keyptur eignarréttur að
hugverkum og auðkennum |
15-20% |
Keypt viðskiptavild |
10-20% |
(*)
Verðmæti sem fyrning er
reiknuð af hverju sinni telst fyrningargrunnur eigna
Heimilt er að gjaldfæra rekstrarfjármuni að
kostnaðarverði allt að kr. 250.000.- frá og með rekstrarárinu 2002.
Stofnkostnað við kaup á réttindum, sem ekki
rýrna vegna notkunar, er ekki heimilt að fyrna, þ.á.m. aflaheimildir.
Verðmæti slíkra réttinda er ekki heimilt að færa til frádráttar skattskyldum
tekjum. Sérreglur gilda þó um fyrningar á stofnkostnaði vegna
aflahlutdeilda, sem keyptar voru fyrir 23. desember 1997.
Stofnkostnað, svo sem kostnað við skráningu fyrirtækis og öflun
atvinnurekstrarleyfa, svo og kostnað við tilraunavinnslu, markaðsleit,
rannsóknir og öflun einkaleyfis og vörumerkja, er heimilt að færa niður á
því ári, sem viðkomandi eign myndast eða með jöfnum fjárhæðum á fimm árum.
|