Lán, gjafir og úthlutun verðmæta

  1. Lán til starfsmanna, sem eru óheimil skv. lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélagalög, teljast viðkomandi til tekna.

  2. Lán til hluthafa og stjórnarmanna, sem eru óheimil skv. lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög, teljast til gjafa.

  3. Úthlutun arðs til hluthafa eða hlutareiganda sem jafnframt er starfsmaður félags, eða tengds félags, telst vera laun ef úthlutunin er óheimil skv. lögum um hlutafélög eða lögum um einkahlutafélagalög. Ef úthlutun til annarra en starfsmanna er óheimil skv. lögum um hlutafélög eða lögum um einkahlutafélög skal skattleggja úthlutunina sem tekjur. Ef slík úthlutun á sér stað til sameignarfélags, þar sem einn sameigenda er hluthafi, stjórnarmaður eða starfsmaður félags, skal úthlutunin teljast honum til tekna.