Við tökum að okkur endurskoðun og ársreikningagerð fyrir öll rekstrarform fyrirtækja og félaga. Hjá félaginu starfa tveir löggiltir endurskoðendur sem og þrír viðskiptafræðingar með yfirgripsmikla reynslu og þekkingu á sviði ársreikningagerðar og endurskoðunar.
Ársreikningar
Þekking okkar á sviði reikningsskila og ársreikningagerðar gerir okkur kleift að aðstoða fyrirtæki við að leggja fram ársreikninga í samræmi við lög um ársreikninga.
Endurskoðun
Hlutverk endurskoðenda er að staðfesta upplýsingar sem birtast í ársreikningum og felst ábyrgð þeirra í því áliti sem þeir láta í ljós á ársreikningnum á grundvelli endurskoðunarinnar. Við lok endurskoðunar áritar endurskoðandi reikningsskilin með áritun sem inniheldur upplýsingar um endurskoðunina og álit endurskoðandans. Við leggjum mikla áherslu á að starfa í samræmi við góða endurskoðunarvenju og siðareglur endurskoðenda